Umferðaröryggi
Dulin drápstól
Lausir hlutir geta breyst í dulin drápstól
Þótt ökumaður og farþegar séu í bílbeltum þá er hættan sú að lítill og að því er virðist sakleysislegur hlutur sem liggur laus í bílnum geti við árekstur breyst í drápstól. Dæmi er um að kaffibrúsi, skjalataska jafnvel nestisbox hafi við árekstur flogið af stað og þegar það lendir á einhverri fyrirstöðu verður höggþungi hlutarins margföld vigt hans. Fyrirstaðan getur verið höfuð ökumannsins sem vitanlega þolir ekki höggið. Sama á við um laus gæludýr sem sjálf geta stórslasast við árekstur. Fyrir þau eru til sérstök öryggisbelti sem að er vel þess virði að nota. Það er nánast undantekningarlaust hægt að koma í veg fyrir þessi slys með því að setja allt sem að er lauslegt í farangursgeymslu eða skorða það þannig að ekki sé hætta á að það kastist til við árekstur.



