Umferðaröryggi
Hægt og hratt
Að fara of hægt og of hratt
Það er vitað mál að með auknum hraða eykst hættan á alvarlegu líkamstjóni ef slys ber að höndum. Það eru hinsvegar ekki eins augljóst að í mörgum tilfellum getur það skapað mikla hættu að fara of hægt. Þegar umferð er mikil skiptir miklu máli að ökumenn haldi sig á jöfnum hraða ¿ fari hvorki of hratt né of hægt. Ef ekið er á hraða sem að er langt fyrir neðan leyfðan hámarkshraða og akstursaðstæður eru góðar skapast nauðsyn á framúrakstri. Öllum framúrakstri fylgir töluverð hætta og því skulum við ekki stuðla að honum að óþörfu. Með því að fara óeðlilega hægt við bestu aðstæður er verið að skapa mikla hættu.



