Frétt lesin
Ósannar ásakanir um auglýsingu Umferðarstofu
miðvikudagur 26. september 2007
Að undanförnu hefur mátt sjá ásakanir í bloggheimum um það að Umferðarstofa og auglýsingastofan Hvíta húsið hafi stolið hugmyndinni að auglýsingunni „Notaðu bílbeltin" sem gerð var í fyrra sumar. Auglýsingin sýnir sálir stíga upp til himna eftir banaslys í umferðinni. Sá eini sem kemst lífs af er sá sem notaði bílbelti.
Það hefur aldrei verið neitt launungarmál að Umferðarstofa styðst við auglýsinguna „Heaven can wait” sem norska vegagerðin lét gera fyrir nokkrum árum síðan og fékk til þess leyfi. Auglýsingin er þ.a.l. ekki stolin né heldur ensk eins sumir bloggarar hafa sagt hana vera.
Í öllum umfjöllunum Umferðarstofu um þessa auglýsingu hefur ætíð komið skýrt fram þessi tenging og að leyfi var fengið fyrir notkun hugmyndarinnar. Þetta koma m.a. fram í fréttatilkynningum og viðtölum við fulltrúa Umferðarstofu á síðasta ári. Þar að auki kemur þetta skýrt fram á heimasíðu okkar eins og sjá má hér .
Það er því rangt að saka auglýsingastofuna Hvíta húsið um óheiðarleika. Þeir tóku að sér að útfæra hugmyndina fyrir íslenskar aðstæður. Það gerðu þeir mjög vel og kostnaður þess var vitanlega mun lægri en ef þeir hefðu þurft að vinna alla hugmyndavinnuna frá grunni.



